Eignin er komin í fjármögnunarferli. Við erum með kaupendur að öllum gerðum sérbýla í hverfinu.
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Kristnibraut.
Fallegt og bjart sex herbergja parhús á þessum eftirsótta stað í Grafarholtinu.Neðri hæð
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu sem tengir alla hluta hæðarinnar saman.Á milli hæða er rúmgóður pallur þaðan sem hægt er að ganga út í garðinn sem er skjólgóður með sólpalli. Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú og eru þau öll rúmgóð. Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf er með stórum sturtuklefa. Innangengt er í bílskúrinn, inn af bílskúrnum er geymsla.
Efri hæð
Stofurnar eur rúmgóðar og bjartar með mikilli lofthæð, stórir gluggar eru á tvo vegu með frábæru útsýni yfir borgina. Útgengt er úr stofunni út á svalir. Eitt rúmgott svefnherbergi er á hæðinni.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu, Þar er mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf inn af baðherberginu er þvottahús með innréttingu.
Gólfefni hússins eru flísar og parket.
Þetta er virkilega fallegt hús á eftirsóttum stað sem vert er að skoða.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is