SELT - er í fjármögnunarferliFasteignasalan Grafarvogi kynnir: Skólavegur 7, Hnífsdal.
Fallegt fimm herbergja hús á einstökum stað í Hnífsdal. Eignin er skráð 127.7 m², þar af eru 82.4 m² á hæðinni og 45.3 m² í kjallara.
Húsið er steinsteypt og samkvæmt fasteignayfirliti er það byggt árið 1958.
Skemmtilegt hús með fallegum og góðum garði. Einstakt umhverfi í Hnífsdal þar sem náttúran er allt um kring og fallegt útsýni, meðal annars út á Ísafjarðardjúp.
Nánari lýsing á hæðinni:
Komið er inn snyrtilega forstofu og hol sem er flísalagt.
Stofa / borðstofa er parketlögð, rúmgóð og björt með stórum gluggum. Þaðan er gengið út á skjólgóðan sólpall.
Eldhús er með eldri innréttingu og borðkrók.
Svefnherbergin á hæðinni eru tvö, annað þeirra er klætt með panel.
Lítið flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari.
Úr holi er gengið niður stiga í kjallara hússins.
Nánari lýsing kjallari:
Komið er niður stigann í lítið hol í kjallaranum.
Stórt flísalagt herbergi, sem notað er sem stofa í dag.
Gott parketlagt herbergi, panelklætt og inn af því er ágætt fataherbergi.
Stórt flísalagt baðherbergi / þvottahús með sturtu og baðkari.
Undir stiganum er geymslurými.
Þetta er skemmtileg eign á einstökum stað í Hnífsdal. Fallegur og gróinn garður fylgir húsinu og þar er einnig huggulegt garðhús sem er nýtt sem verkfærageymsla.
---
VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ – MIKIL EFTIRSPURN
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson,
nemi til löggildingar fasteignasala
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]www.fastgraf.is
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi