Valhúsabraut 13, 170 Seltjarnarnes
59.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjórbýli
2 herb.
63 m2
59.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1969
Brunabótamat
30.200.000
Fasteignamat
54.900.000
Opið hús: 24. október 2024 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús fimmtudaginn 24. október á milli klukkan 17:30 og 18:00. Gengið inn á vestur hlið hússins. Verið velkomin.

Opið hús fimmtudaginn 24. október  á milli klukkan 17:30 og 18:00. Gengið inn á vestur hlið hússins. Verið velkomin.
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Valhúsabraut.
 
Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með sér inngangi í fjórbýlishúsi  á þessum eftirsótta stað í Seltjarnarnesi.
Sér inngangur er á vesturgafli hússins.
Eldhúsið er  með vel með farinni innréttingu, ágætis skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Inn af eldhúsinu er þvottahús/geymsla.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og baðkari.
Svefnherbergið er rúmgott með stórum skáp.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum. Útgengt er úr stofunni út á skjólgóða timburverönd til suðurs og þaðan út í stórann garð.
Gólfefni eru flísar og parket.
Samkvæmt eiganda þá er búið að endurnýja húsið töluvert, svo sem múrviðgera svalir og tröppur ásamt því að taka pappa og járn af þaki og láta PVC dúk í staðinn. Núna standa yfir framkvæmdir við að einangra og klæða allt húsið að utan með álklæðningu og lýkur þeim framkvæmdum fljótlega. Þessar framkvæmdir eru að fullu greiddar.
Þetta er virkilega skemmtileg eign í fallegu húsi á nesinu þar sem stutt er í  þjónustu svo sem, skóla, leikskóla, íþróttastarf og verslun.
Fasteignamat næsta árs er kr: 56.750.000.-
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.