Þórsmörk 1, 810 Hveragerði
95.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
267 m2
95.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1967
Brunabótamat
104.300.000
Fasteignamat
93.050.000


Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Þórsmörk 1A.
Tækifæri fyrir fjárfesta. möguleiki er á að útbúa tvær til þrjár auka íbúðir. Eina á neðri hæð og eina til tvær í bílskúrnum.

Vel skipulagt og bjart átta herbergja einbýlishús með bílskúr á góðum stað miðsvæðis í Hveragerði.
Komið er inn í  forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er mjög rúmgott. Þar er falleg, endurnýjuð innrétting með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu.              
Stofan og borðstofan eru rúmgóð og björt með stórum gluggum.
Baðherbergið sem er allt flísalagt er með ágætis innréttingu og baðkari.
Svefnhverbergin á hæðinni eru fjögur, þau eru öll mjög rúmgóð. Skápar eru í öllum herbergjum.
Úr þvottahúsinu er útgengt út á lóðina. Þar er lítil innrétting og skolvaskur.
Kjallarinn skiptist í þrjú rými, öll með máluðum gólfum og gluggum.
Garðurinn í kringum húsið sem er allur afgirtur er mjög stór og skjólgóður. Rúmgóður timburpallur er við tvær hliðar hússins. Stórt aflokað hundagerði er við húsið.
Bílskúrinn sem er 73,9 fermetrar er með tvennum göngudyrum og gluggum á austur og vestur hliðum.  Í hluta bílskúrsins eru þrjú stór hundabúr sem eru að vísu ekki seld með eigninni ásamt þvottaaðstöðu fyrir hunda, þannig að auðvelt er að vera með einhverskonar atvinnustarfsemi þarna.
Húsið stendur á frábærum, skjólsælum stað.
Þetta er virkilega fallegt fjjölskylduhús, sem bíður uppá mikla möguleika, til dæmis auka íbúð, á  eftirsóttum stað, þar sem stutt er í alla þjónustu, sem vert er að skoða.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.