Opið hús: 21. nóvember 2024 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús að Breiðavík 8, íbúð 201, fimmtudaginn 21. nóvember á milli klukkan 17:30 og 18:00. Verið velkomin.
Opið hús að Breiðavík 8, íbúð 201, fimmtudaginn 21. nóvember á milli klukkan 17:30 og 18:00. Verið velkomin.Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynnir Breiðavík.
Virkilega falleg, vel um gengin, þriggja herbergja íbúð með sér inngangi, á annari hæð, í snyrtilegu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Grafarvoginum. Eigninni fylgir rúmgóður bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Innst í eldhúsinu er rúmgóður borðkrókur með fallegu útsýni.
Baðherbergið hefur nýlega verið endurnýjað það er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni og rúmgóðum sturtuklefa.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í báðum herbergjum.
Stofan er stór og björt og útgengt er úr stofu út á skjólgóðar svalir.
Þvottahús er innan íbúðar, góð innrétting er í kringum tæki.
Bílskúrinn er rúmgóður, bílskúrshurðin er með sjálfvirkum bílskúrshurðaopnara.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Sér geyrmsla er í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu.
Þetta er falleg eign á góðum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla og leikskóla og verslun.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]