FRÁBÆRT TÆKIFÆRI Í HJARTA MIÐBORGARINNAR.
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Skólavörðustíg.
Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á þessum eftirsótta stað í hjarta miðborgarinnar.Neðri hæðKomið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp.
Gestabaðherbergi er á hæðinni.
Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu, Þar er ágætis skápapláss og góð vinnuaðstaða.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með stórum gluggum. Útgengi er út á svalir.
Sér þvottahús er á hæðinni.
Efri hæðÁ milli hæða er steyptur stigi. Á efri hæðum eru tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum. Úr öðru þeirra er útgengt út á stórar lokaðar svalir með útsýni yfir miðborgina.
Baðherbergið sem er flísalagt er mjög stórt. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi.
Í sameigninni er sér geymsla sem og sameiginleg hjólageymsla.
Þetta er virkilega góð eign á frábærum stað í hjarta miðborgarinnar sem bíður uppá mikla möguleika.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is