Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynnir Hólsveg.
Virkilega falleg, vel umgengin,
þriggja til fjögurra herbergja íbúð með
sér inngangi, staðsetta á annari hæð, í snyrtilegu þríbýli á þessum vinsæla stað í nágrenni Laugardalsins. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð.
Forstofan er með flísum á gólfi og þaðan er gengið upp teppalagðan stiga.
Alrými íbúðarinnar skiptist í stofu og eldhús, það er einstaklega rúmgott og bjart með glugga til þriggja átta og frábæru útsýni. Eldhúsið sem hefur verið endurnýjað er með fallegri innréttingu, mjög góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er einnig í eldhúsinu.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað það er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni og stórri walk in sturtu..
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni þar sem skápar eru í öðru herberginu.
Stofan er stór og björt og bíður uppá marga möguleika.
Þvottaaðstaða er innan íbúðarinnar.
Nýr geymsluskúr er í garðinum sem tilheyrir íbúðinni.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket og var nýtt parket lagt árið 2021.
Samkvæmt eiganda hafa frárennslislagnir verið endurnýjaðar. Þakið var málað árið 2021 og nýtt grindverk ásamt leiktækjum komið upp á lóðinni.
Þetta er virkilega falleg eign á frábærum stað við rætur Laugardalsins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu þar á meðal skóla, leikskóla og verslanir.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]