Eignin er komin í fjármögnunarferli
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Suðurgötu 87, Akranesi.Um er að ræða tveggja hæða húseign á frábærum stað á Akranesi.
Húsið sjálft er tveggja hæða, og er í dag nýtt sem tvær íbúðir auk vinnustofu. Sameiginlegur inngangur er í báðar íbúðirnar, en sérinngangur er í vinnustofuna sem er á fyrstu hæðinni. Á lóðinni er svo stór frístandandi bílskúr/geymsluskúr.
Heildareignin er skráð skv. þjóðskrá 198,2 m². Húseignin sjálf er skráð 155,4 m² (77,7 m² hvor hæð) og geymsluskúr á lóðinni er skráður 42,8 m².
Nánari lýsing 1. hæð.
Inngangur begga íbúða er sameiginlegur á hæðinni. Íbúðin á fyrstu hæð skiptist í litla forstofu, eldhús með hvítri innréttingu, tvö parketlögð svefnherbergi og flísalagt baðherbergi með vaskinnrétingu og sturtuklefa. Á neðri hæðinni eru einnig tvö önnur parketlögð herbergi sem í dag eru aðskilin frá íbúðinni og nýtt sem vinnustofa. Sér inngangur er í þetta rými úr bakgarði hússins.
Nánari lýsing 2. hæð.
Sameiginlegur inngangur með fyrstu hæð með teppalögðum stiga sem liggur upp í flísalagða forstofu. Þaðan er útgengt á litlar svalir. Íbúðin á hæðinni skiptist svo í eldhús með hvítri innréttingu, flísalagt baðherbergi með baðkari, fjögur parketlögð herbergi, eitt af þeim nýtt sem stofa í dag og lítið geymslurými með uppgengi á geymsluloft.
Bílskúr/geymsluskúr er á lóðinni bakvið húsið sjálft. Skúrinn er stór og er hann í dag eingöngu notaður sem geymsla.
Húsið er steinsteypt og klætt að utan með bárujárni. Þak er einnig bárujárnsklætt. Gluggar virðast nýlegir og í góðu ásigkomulagi. Eignin í heild sinni þarfnast viðhalds og er mælt með að áhugasamir leiti aðstoðar fagmanna til að kynna sér ástand hennar við skoðun.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
[email protected]
Sími 863-1126
www.fastgraf.is