Eskivellir 11, 221 Hafnarfjörður
68.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
83 m2
68.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
47.000.000
Fasteignamat
61.200.000

Jósep Grímsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna fallega íbúð að Eskivöllum 11 í Hafnarfirði

Góð þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði.
Eignin skiptist í forstofu/gang, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem er innan íbúðar.
Eignin er skráð skv. þjóðskrá 83,7 m² og er einkar vel skipulögð.
Íbúðin er horníbúð á enda hússins og er því með mjög gott útsýni í þessu nýlega fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2020.
 
Lýsing íbúðar:
Forstofa  er með góðum skáp og flísum á gólfi. Gengið er inn í forstofuna úr snyrtilegri sameign örstutt frá lyftunni.
Stofa og eldhús eru í björtu parketlögðu alrými með fallegu útsýni á tvo vegu. Gengið er út á góðar svalir úr þessu rými.
Eldhúsið er með góðri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp með frysti.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket á gólfi og góður fataskápur.
Barnaherbergi er parketlagt og með góðum skáp.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum. Góð vaskinnrétting, sturta, upphengt salerni og gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar og er gengið í hana úr forstofunni.

Búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á lóð hússins sem allir íbúar geta nýtt sér. Í sameign er hjóla og vagnageymsla.
Húsið er á sex hæðum með 39 íbúðum. Húsið er staðsteypt, álklæðning að utan, gluggar eru úr áli og tré.
Björt og falleg íbúð á frábærum stað í þessu góða hverfi. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, sundlaug, verslanir og almenna þjónustu.


Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.

Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.