Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Mosarima.Björt og rúmgóð, vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð á barnvænum stað í Grafarvoginum þar sem stutt er í alla þjónustu.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp.
Baðherbergið hefur allt verið endurnýjað, flísar á gólfum, baðkar með sturtuaðstöðu, falleg innrétting og tengi fyrir þvottavél.
Alrými íbúðarinnar skiptist í stofu og eldhús. Í eldhúsi er vel með farin innrétting með góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Úr stofunni er gengið út í aflokaðan garð.
Svefnherbergin í íbúðinni eru tvö. Fataskápar eru í báðum herbergjum.
Gólfefni íbúðarinnar er dúkur ásamt flísum á baðherbergi.
Í sameigninni er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Sér bílastæði, fyrir framan húsið, fylgir eigninni.
Þetta er virkilega falleg eign í snyrtilegu fjölbýli á eftirsóttum stað í Grafarvoginum þar sem stutt er í alla þjónustu, s.s. leik-og grunnskóla, Spöngina, Egilshöll og sundlaug Grafarvogs.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is