Berjarimi 10, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
74.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
109 m2
74.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1994
Brunabótamat
50.460.000
Fasteignamat
59.650.000

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Berjarimi.
Falleg og björt, mikið endurnýjuð íbúð á jarðhæð.
Íbúðin er skráð þriggja herbergja en búið er að bæta við þriðja svefnherberginu á kostnað stofunnar. Mjög auðvelt er að færa þetta til fyrra horfs og getur seljandi séð um það. Íbúðin er mikið endurnýjuð og vel skipulögð, á barnvænum og eftirsóttum stað í Grafarvoginum, þar sem stutt er í alla þjónustu.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp.
Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf hefur allt verið endurnýjað, þar er walk in sturta, upphengt salerni og falleg innrétting.
Eldhúsið sem hefur verið endurnýjað er með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Borðplatan er úr steini.
Stofan er frekar lítil þar sem útbúið hefur verið auka svefnherbergi úr hluta af henni. Auðvelt er að fjarlægja vegg og breyta í upprunalegt horf. Úr stofunni er gengið út á rúmgóðann lokaðann, skjólgóðann Sólpall.
Svefnherbergin eru þrjú, fataskápar eru í tveimur herbergjum.
Rúmgott þvottahús er innan íbúðar með góðu hilluplássi.
Hjóla og vagnageymsla er í sameigninni ásamt sér geymslu.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og nýlegt parket.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Tengi fyrir rafhleðslustöð er í stæðinu.
Samkvæmt eiganda hefur húsið fengið gott viðhald svo sem: Þak málað og viðgert, rennur lagfærðar, hús málað og sprunguviðgert og skipt um glugga þar sem þörf var á.
Þetta er virkilega falleg eign í snyrtilegu fjölbýli á vinsælum stað í Grafarvoginum þar sem grunnskóli, leikskóli og Spöngin eru í næsta nágrenni, sem vert er að skoða.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.