Rauðalækur 57, 105 Reykjavík (Austurbær)
134.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Þríbýli
6 herb.
172 m2
134.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
85.000.000
Fasteignamat
104.950.000

Eignin er seld með fyrirvara.
Jósep Grímsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Rauðalæk.

Sérlega glæsileg, mikið endurnýjuð efri sérhæð, með tvennum svölum og mjög góðu útsýni á þessum frábæra stað í Laugardalnum.
Íbúðinni fylgir herbergi í kjallara með sér baðherbergi og eldunaraðstöðu ásamt bílskúr sem hefur verið innréttaður sem íbúð. Báðar þessar einingar eru í útleigu í dag.
 
Nánari lýsing á íbúð:
Anddyri: Gengið er inn um sérinngang upp snyrtilegan teppalagðan stiga. Fatahengi og skógrind er á stigapalli.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart alrými með góðu flæði á milli eldhús, borðstofu og stofu. Nýlegt Birgison harðparket á gólfi. Úr stofunni er útgengt úr á stórar svalir sem ná yfir tvær hliðar hússins. Hluti þessara svala er yfirbyggður.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu með hvítum subway flísum á milli skápa og hvítri Corian borðplötu. Tveir nýlegir ofnar í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu. Góð innrétting með speglaskáp og handlaug ásamt rúmgóðum veggskáp og handklæðaofni.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi eru þrjú innan íbúðar. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með opnu fatahengi og innbyggðum kommóðum, þaðan er útgengt út á stórar yfirbyggðar svalir. Til viðbótar eru svo tvö önnur svefnherbergi bæði parketlögð.
Herbergi í sameign:  Í sameign er rúmgott og bjart herbergi sem tilheyrir íbúðinni, staðsett í kjallara, með sér baðherbergi og parket á gólfi.
Baðherbergi í sameign: Flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu. Góð innrétting með speglaskáp og handlaug.
Geymsla: Geymsluloft er yfir allri íbúðinni og er það séreign sem fylgir hæðinni.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginlegur garður er fyrir framan og aftan húsið.


Bílskúr er skráður 26,7 fm2 og er innréttaður sem stúdíóíbúð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, salerni og handlaug, lítil eldhúsinnrétting með vaski, bakarofni og plássi fyrir ísskáp. Innfelld lýsing í lofti og parket á gólfi. Bílskúrinn var endurgerður og innréttaður sem íbúð fyrir 4árum.


Viðhald og endurbætur:
Húsið og sameignin er í góðu ástandi og hefur viðhald verið gott og húsið endurnýjað og lagfært eftir þörfum. Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað á undaförnum árum innan og utandyra samkvæmt eigendum:
2012: Þak yfirfarið og málað.
2014: Skipt um eldhúsinnréttingu og opnað á milli eldhús og borðstofu.
2016: Skipt um alla glugga og gler í húsinu. Rennur endurnýjaðar og settur hitavír í þær. Sprautað í sprungur á suðurhlíð.
2017: Skipt um þak og sperrur á bílskúr og sett öndun, ný útihurð, frárenslislagnir, vatnslagnir, veggir og loft klætt, baðherbergi með sturtu komið fyrir og gólf flotað að hluta.
2018: Baðherbergi endurnýjað. Skipt um þrýstijafnara í hitagrind. Nýtt harðparket frá Birgisson lagt á alla íbúðina. Nýjar sérsniðnar screen rúllugardínur fyrir flesta glugga.
2020: Rafmagnstafla og raflagnir endurnýjaðar í sameign, gert ráð fyrir rafbílahleðslu. Flestar innihurðir og allir blindir karmar endurnýjaðir með hurðum frá Birgisson.
2021: Skipt um borðplötu í eldhúsi með granít borðplötu frá Rein, eldhúsvaskur límdur undir og span helluborð niðurfellt. Ný vönduð blöndunartæki í eldhúsi frá Ísleifi Jónssyni.
2022: Nýtt helluborð og tveir nýir ofnar, skipt um fataskáp í hjónaherbergi.
2023: Nýtt rafmagn dregið í eldhús og lítil rafmagnstafla sett upp. 
2023: Rafhleðslustöð keypt og sett upp utan á bílskúr. Ljós með hreyfiskynjara sett utan á bílskúr
2024-2025: Skipt um skólplagnir, nýtt dren sett við húsið og skipt um allar neysluvatnslagnir. Þvottahúsið var einnig yfirfarið í kjölfar framkvæmda og settar nýjar flísar og málað.
 
Þetta er virkilega góð og skemmtileg eign þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem verslanir, skóla, leikskóla, Laugadalslaug og útivistarparadísina í Laugadal.
 
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.