Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Flétturima.Virkilega falleg og björt, töluvert endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á annari hæð, með stæði í lokaðri bílageymslu á góðum stað miðsvæðis í Grafarvogi.
Komið er inn á rúmgott hol með stórum fastaskáp.
Baðherbergið er með snyrtilegri innréttingu. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi.
Svefnherbergin í íbúðinni eru þrjú, þau eru rúmgóð og björt. Stór fataskápur er í hjónaherberginu.
Eldhúsið er með fallegri endurnýjarði innréttingu og tækjum, Þar er mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða. Á bak við eldhúsið er lítið skrifstofuherbergi. Hægt er að opna þar á milli og stækka eldhúsið.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með stórum gluggum. Útgengt er úr stofu út á sér svalir til suðvesturs.
Sér þvottahús er innan íbúðar.
Í sameigninni er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Íbúðin er með nýlegu parketi.
Þetta er virkilega falleg eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla þjónustu, svo sem, skóla, leikskóa og verslanir sem vert er að skoða.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is