Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Berjarima.Falleg og björt fimm til sex herbergja efri sérhæð á góðum stað í Rimahverfinu.
Komið er inn í rúmgóða forstofu.Úr forstofunni er innangengt í góðan bílskúr annarsvegar og fataherbergi/geymslu hinsvegar.
Úr forstofunni er steyptur teppalagður stigi upp í íbúðina.
Í miðrými hæðarinnar er stórt nýlega uppgert eldhús ásamt borðstofu. Eldhúsið hefur verið endurnýjað á sérlega glæsilegan hátt, þar er hvít innrétting með mjög miklu skápaplássi ásamt stórri eyju, einnig með miklu skápaplássi. Vinnuaðstaða í eldhúsinu er mjög góð. Í eldhúsi og borðstofu eru fallegar flísar. Gólfhiti er undir flísum.
Stofan er rúmgóð og björt, með stórum gluggum og fallegu útsýni
Baðherbergið sem hefur verið er flísalagt í hólf og gólf með nýlegri innréttingu. Þar er baðkar, nýleg walk in sturta og upphengt salerni.
Þvottahúsið er rúmgott með góðri innréttingu. Úr þvottahúsinu er útgengt út á svalir.
Svefnherbergin í húsinu eru fjögur, þau eru öll rúmgóð. Búið er að opna á milli tveggja herbergja en mjög auðvelt er að færa í fyrra horf. Úr hjónaherberginu er útgengt út á stórar svalir. Inn af hjónaherberginu er baðherbergi með walk in sturtu. Einnig er útgengt úr einu af herbergjana út á sér svalir.
Rúmgott sjónvarpshol er í íbúðinni.
Rúmgóð geymsla með glugga er á hæðinni. Mögulega er hægt að nýta hana sem herbergi.
Gólfefni hússins eru flísar og parket.
Bílskúrinn er skráður 25,2 fermetrar.
Búið er að endurnýja þakjárnið á húsinu.
Þetta er virkilega fallegt hús í rólegum botnlanga þar sem stutt er í skóla og leikskóla og aðra þjónustu.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]
www.fastgraf.is