Jósep Grímsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Bíldshöfða.Virkilega gott og vel skipulagt iðnaðarhúsnæði á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Eignin er á tveimur hæðum, neðri hæð er 207 fermetrar og efri hæð 151,3 fermetrar. Hringstigi er á milli hæða.
Aðkoma að neðri hæð er frá Bíldshöfða.
Rýmið skiptist í stóran sal með sérstyrktri gólfplötu og baðherbergi með sturtu.
Mjög hátt er til lofts í fremri hluta rýmisins líklega um 6 metrar. Innkeyrsluhurðin er 4 metrar. Hringstigi er á milli hæða, en auðvelt væri að loka á milli væri vilji fyrir því.
Inngangur á efri hæð er frá Axarhöfða, fyrir framan inngang er malbikað upphitað bílaplan. Við hlið inngangs eru innkeyrsludyr.
Rýmið skiptist í dag í stóra skrifstofuaðstöðu, lager, baðhergi og rúmgóða kaffistofu.
Þarna var áður verslun og því væri mjög auðvelt að breyta rýminu aftur í verslunarrými, einnig væri mögulegt að útbúa íbúð þarna.
Þetta er eign sem bíður upp á mikla möguleika.
Vantar allar gerðir eigna á skrá, persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
[email protected]